Jarðskjálfti, sem mældist 5,3 stig, varð í fjallahéruðum á mörkum Colorado og Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum í nótt. Jarðskjálftar eru afar sjaldgæfir á þessum slóðum.
Skjálftinn varð laust fyrir miðnættið að staðartíma, 5:46 að íslenskum tíma. Upptök hans voru 290 km suður af Denver á fjögurra kílómetra dýpi.
Einhverjar skemmdir urðu á vegum og byggingum en ekki er vitað til að neinn hafi sakað.