Saif al-Islam, sonur Múammars Gaddafis, einræðisherra Líbíu, segir að faðir sinn og fjölskylda séu enn í Trípolí. Harðir bardagar hafa verið í morgun við víggirtar höfuðstöðvar Gaddafis í borginni.
„Gaddafi og öll fjölskyldan eru í Trípolí," sagði Saif við blaðamenn á Rixos-hótelinu þar sem margir erlendir blaðamenn búa um þessar mundir.
Hann vildi ekki upplýsa nánar hvar faðir hans er í borginni. Hann sagði hins vegar, að hersveitir stjórnarinnar hefðu vísvitandi ekki reynt að hindra að uppreisnarmenn færu inn í Trípolí á sunnudag.
„Það var lymskubragð að leyfa uppreisnarmönnum að fara inn í Trípolí," sagði Saif án þess að útskýra orð sín nánar.