Gaddafi, fráfarandi einræðisherra Líbíu, hélt sig ríkmannlega. Gullhúðaðar styttur og fagrir skrautmunir voru daglega fyrir augum hans. Reuters-fréttastofan leit inn í híbýli Gaddafis.
Eins og sjá má á myndskeiðinu er bænahald í moskum í Trípólí með eðlilegum hætti þrátt fyrir að enn sé barist í einstökum hverfum borgarinnar. Uppreisnarmenn hafa ákveðið að flytja höfuðstöðvar sínar frá borginni Benghazi til höfuðborgarinnar Trípólí.
Húsakynnin eru reyndar skráð á dóttur Gaddafis en ljóst má vera að ekkert var til sparað við húsakostinn.