Fjölskylda Gaddafis komin til Alsír

Sundlaug dóttur Gaddafis, Aishu, er ekkert slor
Sundlaug dóttur Gaddafis, Aishu, er ekkert slor Reuters

Eiginkona Gaddafis, Sofia, dóttir hans Aisha og synir Hannibal og Mohammed, eru öll í Alsír, samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðuneyti Alsír. Komu þau til landsins í morgun.

Auk þeirra eru barnabörn Gaddafis með í för, samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu. Ekkert er minnst á einræðisherrann sjálfan né heldur hvar hann heldur sig.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert