Jarðskjálfti sem mældist 6,7 stig reið yfir Vancouver-eyju við vesturströnd Kanada. Ekki hefur verið gefin út flóðbylgjuviðvörun í kjölfar skjálftans.
Upptök skjálftans voru í 135 km fjarlægð frá bænum Port Hardy á eyjunni og í um 280 km fjarlægð frá borginni Vancouver.