Bandaríkjamenn verða að vera reiðubúnir að „greiða sanngjarnan skerf“ til að draga úr fjárlagahalla ríkisins. Þetta sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti en hann undirbýr tillögur fyrir þingið.
Obama sagði í vikulegu ávarpi sínu til bandarísku þjóðarinnar að Bandaríkjamenn verði að vera reiðubúnir að „greiða sanngjarnan skerf“ til að minnka fjárlagahallann. Reiknað er með að í tillögum hans til þingsins felist hærri skattar á auðuga landsmenn.
„Ég ætla að leggja fram áætlun mína á mánudag um hvernig við gerum það - hvernig við borgum fyrir þessa áætlun og greiðum niður skuldir okkar með því að fylgja grundvallarreglum: Gæta þess að við lifum ekki um efni fram og biðjum alla um að greiða sinn skerf,“ sagði Obama.
Hann sagði að áætlun hans upp á 447 milljarða dollara til að draga úr atvinnuleysi muni innifela skattalækkanir fyrir lítil fyrirtæki og starfsmenn.
„Atvinnumálafrumvarpið leggur til lægri skatta fyrir alla smáfyrirtækjaeigendur í Bandaríkjunum. Það lækkar þá jafnvel meira fyrir eigendur lítilla fyrirtækja svo þeir geti ráðið nýja starfsmenn og hækkað laun starfsmanna. Og það lækkar skatta fjölskyldna vinnandi fólks í Bandaríkjunum svo þú eigir meira í vasanum og fyrirtækin munu vita að viðskiptavinirnir geta keypt það sem þau selja,“ sagði Obama meðal annars.