Spá hitabylgju í Bretlandi

Á sólarströndu í Portúgal en spáð er hitabylgju í Bretlandi …
Á sólarströndu í Portúgal en spáð er hitabylgju í Bretlandi í næstu viku. Reuters

Bretar mega eiga von á því sem þarlendir miðlar kalla indíánasumar í næstu viku. Er haft eftir bresku veðurstofunni að allt bendi til þess að veður verði bæði heitt og þurrt og hiti fari yfir 26 gráðurnar. 

Mestur hiti verður væntanlega í mið- og austurhluta eyjunnar. Meðalhiti í september á Bretlandseyjum er mestur sagður 16 gráður.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert