Þrír létu lífið skammt frá Álasundi í Noregi þegar skemmtibátur tók niðri seint á föstudagskvöld. Sex voru í bátnum en þrír komust lífs af.
Þau sem létust voru karl og kona um fertugt og 17 ára piltur. 15 ára unnustu piltsins tókst að synda í land og láta vita af slysinu.