30 ára kona í Víetnam skar getnaðarlim eiginmanns síns af með skærum og henti limnum í nálæga á. Þetta gerði hún til að hefna sín en maðurinn hafði haldið framhjá konunni og beitt hana líkamlegu ofbeldi.
Konan skar u.þ.b. helming limsins af en maðurinn var í fastasvefni á heimili þeirra hjóna í borginni Tainan eftir að hafa neytt eiturlyfja og svefntaflna. Konan gaf sig í kjölfarið fram við lögregluna. Hún hefur verið kærð fyrir líkamsárás og á yfir höfði sér allt að 12 ára fangelsi.
Konan á að hafa sagt lögreglunni að hún sæi ekki eftir gjörðum sínum. Maðurinn er atvinnulaus og eiturlyfjaneytandi. Hún sagði hann leggja hendur á sig þrátt fyrir að hún ynni á nálægum karókí-stað til að sjá fyrir fjölskyldunni. Framhjáhaldið, sem hann reyndi ekki að fela fyrir henni, hafi verið kornið sem fyllti mælinn.