Ísraelski hermaðurinn Gilad Shalit er kominn til Ísraels, að því er fram kemur fréttavef BBC. Egypsk sjónvarpsstöð birti í morgun myndir af Shalit, en hann hefur verið í haldi Hamas-liða á Gasa-svæðinu í rúmlega fimm ár.
Ekki hefur borist formleg staðfesting frá stjórnvöldum í Ísrael um að Shalit sé kominn til heimalands síns. Egypska sjónvarpsstöðin, sem sýndi myndir af honum í morgun, segir að hann sé heill heilsu. Shalit sagði í samtali við sjónvarpsstöðina að hann vonaði að fangaskiptin myndu stuðla að því að friður yrði saminn milli Ísraels og Palestínu.
Gilad Shalit, er 25 ára gamall. Hann var snemma í morgun fluttur frá Gasa til borgarinnar Rafah og afhentur egypskum stjórnvöldum. Viðstaddir voru fulltrúar stjórnvalda í Ísrael.
Eftir að staðfest hafði verið að Shalit hefði verið fluttur frá Gasa til Egyptalands hófu Ísraelsmenn að sleppa palestínskum föngum lausum. Alls sleppa þeir 477 föngum lausum í dag og 550 á næstu mánuðum.