25 ára gömul kona frá Suður-Afríku gæti átt allt að 10 ára fangelsisdóm yfir höfði sér fyrir kynferðislega áreitni gagnvart flugþjóni. Konan var á leið frá Höfðaborg til London með flugfélaginu Virgin Atlantic þegar hún greip um getnaðarlim mannsins og krafðist kynlífs, eftir að hafa drukkið ótæpilega af viskíi.
Að sögn The Guardian drakk konan, Katherine Goldberg, minnst hálfan lítra af viskíi eftir að hún kom um borð í flugvélina. Hún er svo sögð hafa veist að einum flugþjónanna um borð, gripið um klofið á honum og krafist þess að hann hefði samfarir við hana.
Goldberg er ákærð bæði fyrir ölvun á almannafæri sem og kynferðislega áreitni. Málið var tekið fyrir í héraðsdómi í Bretlandi í dag en dómarar sögðu það svo alvarlegs eðlis að vísa þyrfti málinu á æðra dómstig.