Ítalía of stór til þess að fá aðstoð

Fjármálaráðherra Belgíu, Didier Reynders, Maria Fekter, fjármálaráðherra Bretlands, George Osborne …
Fjármálaráðherra Belgíu, Didier Reynders, Maria Fekter, fjármálaráðherra Bretlands, George Osborne og fjármálaráðherra Svíþjóðar, Anders Borg, á fundi fjármálaráðherra í morgun. Reuters

Fjármálaráðherra Austurríkis segir að Ítalía sé of stór til þess að fá neyðaraðstoð frá öðrum ríkjum og þess vegna verði ítölsk stjórnvöld að vera reiðubúin til þess að fórna ýmsu.

Fjármálaráðherrar ríka Evrópusambandsins sitja nú á fundi í Brussel og ræða skuldavanda Evrópu. Fjármálaráðherra Ítalíu stoppaði hins vegar stutt við og er farinn aftur heim til Rómar þar sem tekist verður á um niðurskurð hjá hinu opinbera á ítalska þinginu í dag.

Maria Fekter, fjármálaráðherra Austurríkis, segir að Ítalía viti að miðað við stærð landsins þá geti það ekki vænst hjálpar utanfrá. 

Sendinefndir Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sitja nú við og rýna í bókhald ítalska ríkisins.

Olli Rehn, sem fer með efnahagsmál hjá framkvæmdastjórn ESB, sagði í gær að hann vildi svör strax frá ítölskum stjórnvöldum hvernig standa ætti að endurskipulagningu ríkisfjármála.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert