Herforingjaráðið í Egyptalandi hefur hafnað afsagnarbeiðni ríkisstjórnar Essams Sharafs forsætisráðherra að því er fram kom í ríkissjónvarpi Egyptalands. Hafði sjónvarpsstöðin þetta eftir heimildum innan hersins.
Talsmaður ríkisstjórnarinnar, Mohammed Hegazy, sagði fyrr í kvöld að ríkisstjórnin hefði sagt af sér á sama tíma og barist er á Tahrir-torgi í höfuðborg landsins, Kaíró, þriðja daginn í röð þar sem tugir hafa látist og fjöldi særst.