Ísland er í 13. sæti yfir þau lönd þar sem spilling er minnst. Spilling er minnst á Nýja-Sjálandi af öllum ríkjum heims en mest er hún í Sómalíu og Norður-Kóreu.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Transparency International stofnunarinnar.
Ísland fær 8,3 stig og er það Norðurlandanna sem er neðst á listanum.
Bandaríkin eru í 24. sæti og Kanada í því tíunda. Danmörk og Finnland deila öðru sæti listans, Svíþjóð er í fjórða sæti, Singapúr er í fimmta sæti og þar á eftir kemur Noregur.
Þýskaland kemur á eftir Íslandi á listanum og Bretland er í 16. sæti. Rússar verma 143. sætið.
Notaður er kvarði á bilinu 0-10, þar sem há tala felur í sér litla spillingu, en lág tala mikla.
Listi Transparency yfir spillingu í ríkjum heims