Sextug kona var drepin af hópi um 25 Rottweiler-hunda sem hún hélt sjálf í þorpinu Radonice-nad Ohri í Tékklandi í morgun. Lést hún samstundis eftir að hún hafði verið bitin alvarlega af hundunum. Heldur sjónvarpsstöð á staðnum því fram að illa hafi verið farið með hundana og þeir hafi verið glorsoltnir.
Er lögregla nú að rannsaka hvernig atburðurinn átti sér stað. Það var dóttir konunnar sem kvaddi til lögreglu sem fjarlægði 25 hunda af lóð konunnar. Ekki hefur fengist staðfest hvort hún hafi alið hundana fyrir hundaslagi.