Kosningaúrslit endurspegluðu vilja þjóðarinnar

Fólk hefur mótmælt úrslitum þingkosninganna um allt Rússland. Þessi mynd …
Fólk hefur mótmælt úrslitum þingkosninganna um allt Rússland. Þessi mynd var tekin austast í landinu í Vladivostok. Reuters

Vladímír Pútín, forsætisráðherra Rússlands, segir að úrslit þingkosninganna í Rússlandi fyrir rúmri viku hafi endurspeglað vilja þjóðarinnar en stjórnarandstaðan geti leitað til dómstóla hafi hún eitthvað við úrslitin að athuga.

Þetta kom fram í yfirlýsingu, sem Pútín flutti í morgun í upphafi sérstakrar sjónvarpsdagskrár þar sem hann situr fyrir svörum og almenningur getur hringt inn og borið fram spurningar. Stjórnarandstæðingar hafa mótmælt kosningaúrslitunum og fullyrt að víðtæk kosningasvik hafi verið framin. Sameinað Rússland, flokkur Pútíns, fékk rúmlega 50% atkvæða samkvæmt opinberum tölum. 

Pútín sagðist fagna því, að almenningur tæki virkan þátt í stjórnmálastarfsemi í Rússlandi en að stjórnarandstæðingar yrðu að hlýða lögum. 

Pútín er í framboði í forsetakosningum í mars. Hann sagði að kjörstjórnir ættu að koma fyrir eftirlitsmyndavélum á öllum 90 þúsund kjörstöðum í landinu og setja myndirnar síðan á netið svo allir landsmenn gætu skoðað þær. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert