Mannréttindasamtök í Bangladesh hafa krafist þess að karlmanni verði refsað harðlega fyrir að skera alla fingur af hægri hendi konu sinnar. Konan segir að maðurinn hafi beitt hana þessu ofbeldi vegna þess að hún vildi mennta sig, en hann hafi verið andsnúinn því.
Sagt er frá þessu máli í frétt á BBC. Konan er 21 árs gömul en hann þrítugur. Maðurinn hefur starfað sem farandverkamaður í Sameinuðu furstadæmunum. Konan segir að hann hafi í símtali sagt að það myndi hafa alvarlegar afleiðingar ef hún færi gegn vilja hans.
„Eftir að hann sneri aftur til Bangladesh vildi hann ræða við mig. Skyndilega setti hann eitthvað yfir höfðuð á mér og batt mig fasta. Hann setti síðan límband fyrir munninn á mér og sagðist ætla að gefa mér gjöf. Síðan skar hann af mér fingurna,“ sagði Hawa Akther Jui í samtali við BBC.
Konan segir að maðurinn sé lítið menntaður og hafi ekki verið ánægður með að eiga konu sem væri meira menntuð en hann. Læknar segja að konan þurfi að lifa með þessa fötlun til æviloka.
Maðurinn hefur játað að hafa skorið fingurna af konunni. Mannréttindasamtök krefjast þess að hann verði dæmdur til harðrar refsingar.