Flækingshundur frá Aþenu sem orðinn er óopinbert lukkudýr borgarinnar er nú kominn á lista yfir þá sem tilnefndir eru sem „menn ársins“ hjá Time tímaritinu.
Hundurinn, Loukanikos, sem útlegst Pylsa á íslensku, fékk heila myndaopnu af sér í tímaritinu en hann á sér einnig 24.000 aðdáendur á samskiptavefnum Facebook.
Loukanikos hefur skipað sér í lið mótmælenda í borginni og sýnir óbeit sína á grísku óeirðalögreglunni í verki með því að gelta á lögreglumennina og bíta í táragasbrúsa.