Ísbjarnaveiðikvóti Grænlendinga á næsta ári er 140 dýr samkvæmt tilkynningu, sem sjávarútvegs- og veiðimálaráðuneyti landsins sendi frá sér í dag. Er þetta sami fjöldi og mátti veiða á þessu ári.
Hugsanlega verður veiðin þó minni því frá kvótanum verða dregin þau dýr, sem kunna að hafa veiðst framyfir kvóta á þessu ári.