Danskir hjólreiðamenn hafa nú svigrúm út janúarmánuð til að venjast hækkaðri gjaldskrá sem tók gildi 1. janúar og gerir vegfarendum dýrt að brjóta umferðarreglurnar. Tali hjólreiðamaður í síma án þess að nota handfrjálsan búnað eða fari yfir á rauðu ljósi getur það kostað hann 1.000 danskar krónur, 21.000 íslenskar krónur. Að hjóla á gangstéttinni kostar 700 DKR og sama vanti lugtina á hjólið.
Mogens Knudsen hjá lögreglunni í Kaupmannahöfn segir á vef Berlingske að ekki verði farið í sérstakt umferðarátak eins og oft áður í janúar. Fólk verði að sjálfsögðu sektað brjóti það reglur en ekki verði lögð sérstök áhersla á að fylgjast hjólreiðamönnum eða öðrum í janúar. Gjaldskrárhækkunin hafi ekki það markmið að ná auknum tekjum heldur sé áherslan á aukið umferðaröryggi.