Björgunarmenn segjast í morgun hafa heyrt talað við mann, sem er fastur í klefa í farþegaskipi, sem marar í hálfu kafi undan vesturströnd Ítalíu. Enn hefur ekki takist að bjarga manninum út úr skipinu.
Leitað hefur verið í skipinu í alla nótt en 41 er enn saknað eftir að skipið sigldi á rif á föstudagskvöld. Þrír létu lífið, tveir Frakkar og einn Perúmaður.
Suðurkóresk hjón á þrítugsaldri fundust í skipinu í gærkvöldi. Það tók björgunarmenn um einn og hálfan tíma að ná þeim út úr klefa sínum og flytja á land. Fólkið var ómeitt og gekk sjálft inn í sjúkrabíl sem flutti það á sjúkrahús til rannsóknar. Fram kom að um var að ræða nýgift hjón, sem voru í brúðkaupsferð.
Skipstjóri og fyrsti stýrimaður farþegaskipsins voru handteknir í gær og eiga yfir höfði sínu ákæru fyrir manndráp af gáleysi. Saksóknari sagði í morgun, að skipstjórinn hefði yfirgefið skipið talsvert löngu áður en búið var að koma öllum farþegunum til aðstoðar.
Að sögn ítalskra fjölmiðla var Francesco Schettino skipstjóri kominn í land um klukkan 23:40 að ítölskum tíma á föstudagskvöld. Síðasti farþeginn var hins vegar ekki fluttur frá skipinu fyrr en klukkan sex morguninn eftir. Sá farþegi hafði fótbrotnað.
Í gær sagði saksóknari, að skipinu hefði verið siglt of nálægt eyjunni Giglio og þar rakst það á rif. Við það kom um 50 metra löng rifa á skrokk skipsins og það fór strax að hallast.
Mikil ringulreið ríkti um borð í skipinu í kjölfar strandsins. Vegna þess hvað skipið hallaðist mikið tókst ekki að sjósetja alla björgunarbáta um borð. Um 100 manns var bjargað úr sjónum á föstudagskvöld og um 60 manns var bjargað úr skipinu sjálfu með þyrlum. Alls slösuðust 42 farþegar, þar af tveir alvarlega.
Skipið strandaði þegar farþegar voru að snæða kvöldverð og voru margir í samkvæmisklæðum þegar þeir voru fluttir í land. Alls voru 4.234 um borð í skipinu, þar af um 3.200 farþegar og rúmlega þúsund manna áhöfn. Fólkið var frá 60 þjóðlöndum og 52 börn undir sex ára aldri voru um borð. Nærri þriðjungur farþeganna var frá Ítalíu en einnig voru margir Þjóðverjar og Frakkar. Einnig voru Bandaríkjamenn, Rússar, Danir, Bretar og Japanir um borð. Um 300 Filippseyingar voru í áhöfn skipsins.
Skipið er í eigu félagsins Costa Crociere, sem er stærsta skemmtiferðaskipaútgerð í Evrópu.