Skoðanakannanir benda til þess að Mitt Romney sé að stinga af í forkosningum repúblikana fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í haust. Hann mælist nú með tólf prósenta forskot á Newt Gingrich í Flórída þar sem forkosningar fara fram á þriðjudag. Romney beinir nú sjónum sínum að Gingrich sem hann telur sinn helsta keppninaut um að hreppa útnefningu repúblikana sem forsetaframbjóðandi flokksins.