Banaði óvart eiginkonunni með fallbyssu

Bandarískur karlmaður banaði óvart 33 ára gamalli eiginkonu sinni með skoti úr heimatilbúinni fallbyssu. Var hann að eiga við fallbyssuna er skot hljóp óvænt úr henni og í hjólhýsið sem þau hjónin bjuggu í.

Maðurinn hafði neytt áfengis og var viti sínu fjær er bráðaliðar komu á vettvang í bænum Potrero, nálægt mexíkósku landamærunum.

Fjögurra ára gamalt barn var einnig inni í hjólhýsinu er skotið hljóp af fallbyssunni. Barnið meiddist ekki. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert