Kennari í gagnfræðaskóla í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum hefur verið sendur í leyfi eftir að skólayfirvöld komust á snoðir um að hann kynni að tengjast klámiðnaði. Í bréfi sem foreldrum var sent er þeim tilmælum beint til nemenda að þeir leiti ekki að kennaranum á vefsíðum sem sýna klámfengið myndefni. Kemur þetta fram á fréttavef La Crosse Tribune.
„Þær upplýsingar bárust okkur að kennari innan skólans hefði a.m.k. einu sinni komið fram í klámfengnu myndbandi sem finna má á netinu. Ekki er útilokað að um sé að ræða fleiri en eitt myndband. Við förum þess á leit við nemendur að þeir leiti ekki að myndbandinu á þessum óviðeigandi vefsíðum.“ Kemur þetta fram í bréfi skólayfirvalda til foreldra.
Upp komst um málið þegar nokkrir nemendur skólans fundu myndefnið á klámsíðu á netinu. Skömmu síðar gengu tveir kennarar á fund skólastjóra og sýndu honum myndbandið. Telja þeir fullvíst að samkennari þeirra fari þar með hlutverk.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er engin rannsókn í gangi af hennar hálfu. Þess í stað þurfa skólayfirvöld að ganga sjálf úr skugga um það hvort athæfi kennarans stangast á við siðareglur.