Að minnsta kosti fjörutíu eru slasaðir, þar af þrír alvarlega, eftir lestarslys í Taílandi. Stór vörubíll ók yfir lestarteinana með þeim afleiðingum að lestin lenti á honum í Surat Thani-héraði.
Tveir lestarstjórar og ökumaður vörubílsins eru alvarlega slasaðir en um 40 farþegar slösust lítillega.
Lögreglan segir að engar hindranir séu við lestarteinana þar sem vörubíllinn ók yfir og að slysið sé nú til rannsóknar.