Gistinóttum í Rúmeníu fjölgaði um 17,5% milli ára 2010 og 2011. Aukningin varð enn meiri í Búlgaríu eða 21,1%. Þetta má lesa úr skýrslu um ferðamál á vef Eurustat, hagstofu Evrópusambandsins. Gistinóttum fjölgar í öllum aðildarríkjum sambandsins nema þremur.
Ferðaþjónustunni óx einnig fiskur um hrygg við Eystrasaltið. Þannig fjölgaði gistinóttum í Eistlandi um 14,5%, um 16,8% í Lettlandi og um 11,2% í Litháen.
Sem fyrr segir varð samdráttur á þessu sviði í þremur löndum, þ.e. á Ítalíu (-1,2%), á Möltu (-1,9%) og í Tékklandi, þar sem hann varð mestur (-3,0%).
Athyglisvert er að aðeins eitt af þeim fimm ríkjum þar sem aukningin er mest notar evru.
Eistland tók þannig upp evruna sem gjaldmiðil á nýársdag 2011 en Rúmenía, Búlgaría, Litháen og Lettland notast ekki við hina sameiginlegu mynt. Danmörk er í sjötta sæti en danska krónan er sem kunnugt er tengd evrunni.
Tvö af ríkjunum þar sem samdráttur varð nota evru, þ.e. Ítalía og Malta.
Skýrslu Eurostat má nálgast hér.