Svo virðist sem George Zimmerman, nágrannavörslumaðurinn sem skaut til bana unglingspiltinn Trayvon Martin á Flórída í Bandaríkjunum, virðist vera ómeiddur á upptöku úr öryggismyndavél á lögreglustöðinni sem hann var fluttur á eftir að hann hafði verið handtekinn vegna málsins.
Zimmerman sagði Martin hafa kýlt sig og barið höfði sínu síðan við jörðina. Hann segist hafa skotið Martin í sjálfsvörn eftir að hann hafi ráðist á sig.