Skaut föður sinn vegna leikjatölvu

PlayStation
PlayStation AP

Fjögurra ára gamall drengur skaut föður sinn til bana í Sádí-Arabíu eftir að pabbi hans neitaði að kaupa handa honum PlayStation leikjatölvu. Þetta kemur fram í fjölmiðlum í Sádí-Arabíu í dag.

Dagblaðið Asharq hefur eftir lögreglu í Jizan-héraði í dag að barnið, sem er fjögurra ára og sjö mánaða gamall, hafi tekið byssu föður síns og skotið hann í höfuðið.

Samkvæmt frétt blaðsins hafði drengurinn beðið föður sinn um að kaupa handa sér PlayStation tölvu og hann hafi síðan skotið föður sinn þegar hann snéri til baka úr búðinni án leikjatölvunnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert