Svo gæti farið að í næstu viku verði hin evangelísk-lúterska kirkja í Noregi ekki lengur ríkiskirkja, heldur sjálfstæð stofnun eins og önnur trúfélög. Þingsályktunartillaga frá fulltrúum allra flokka um breytingu á stjórnarskránni til aðskilnaðar ríkis og kirkju var lögð fram á Stortinget í dag.
Tillagan verður að líkindum afgreidd á þinginu á mánudag, að sögn NRK. Verði hún samþykkt þýðir það að engin opinber ríkistrú verður lengur í Noregi. Embætti kirkjumálaráðherra verður þá lagt niður og mun hann ekki lengur skipa presta og biskupa eins og verið hefur í 500 ár. Ríkið mun ekki lengur taka þátt í kirkjulegum athöfnum heldur styrkja norsku kirkjuna með sama hætti og önnur trúar- og lífsskoðunarfélög.
Kirkjan fagnar breytingunni
NRK hefur eftir upplýsingafulltrúa norska kirkjuráðsins, Trude Evenshaug, að ríkiskirkjan (Statskirken) hafi lengi barist fyrir þessu. „Þessi breyting er nokkuð sem við höfum óskað lengi eftir, vegna þess að við lifum í margbrotnu samfélagi og það eru margir íbúar þessa lands sem ekki eru meðlimir norsku kirkjunnar. Nýju lögin eru til marks um jafnrétti allra trúfélaga.“
Framkvæmdastjóri kirkjuráðs, Jens-Petter Johnsen, tekur í sama streng í viðtali við NRK. „Þetta er af hinu góða bæði fyrir ríki, kirkju og þjóð. Nú getur norska ríkið unnið að því að efla mannréttindi af meiri trúverðugleika og styrk á alþjóðagrundvelli. Og kirkjan fær meira rými til framþróunar á eigin forsendum og uppfylla hlutverk sitt gagnvart þjóðinni á nýjan hátt í takt við tímann.“
Helgidagar ekki afnumdir
Vinna að tillögunni um stjórnarskrárbreytingu hefur farið fram í þingmannanefnd allra flokka sem skipuð var árið 2008. Um 86% norsku þjóðarinnar eru skírð inn í þjóðkirkjuna. Formaður nefndarinnar, þingmaðurinn Svein Harberg, segir að kirkjan verði nú á jafningjagrundvelli með öðrum trúfélögum í Noregi.
Opinberum helgidögum sem byggjast á kristinni trú verður ekki breytt, að sögn Evenshaug.