Hæstiréttur í Bretlandi hefur hafnað kröfu Julians Assange, stofnanda WikiLeaks, um að framsalsbeiðni sænskra yfirvalda yfir honum verði endurskoðuð. Assange fór fram á það við breska dómstóla að áfrýjun hans gegn framsalinu yrði endurskoðuð og lá þessi niðurstaða fyrir í dag.
Assange hefur barist gegn framsali til Svíþjóðar frá því í desember 2010, en þá var hann handtekinn í London. Hæstiréttur í Bretlandi úrskurðaði í seinasta mánuði að Assange skyldi framseldur til Svíþjóðar, en hann er þar eftirlýstur í tengslum við nauðgun og kynferðislega árás.
Lögmenn Assange halda því fram að saksóknarinn í Svíþjóð hafi engan rétt til þess að láta lýsa eftir Assange.