Reyndu að smygla 4,2 tonnum af hassi

AFP

Búlgarska tollgæslan hefur lagt hald á 4,2 tonn af hassi en flytja átti eiturlyfin til Belgíu. Efnið fannst falið í 132 pakkningum undir byggingarefni í vöruflutningabifreið um borð í ferju.

Er þetta mesta magn af hassi sem lagt hefur verið hald á í Búlgaríu á síðustu fimmtán árum. Þrír eru í haldi lögreglu vegna smyglsins. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert