66 sýrlenskir hermenn flúðu yfir landamærin til Tyrklands í dag, þar af nokkrir yfirmenn. Sýrlenskir hermenn hafa síðustu daga flúið land, en 85 flúðu til Tyrklands á mánudaginn.
Einn hershöfðingi var í hópi þeirra hermanna sem flúðu yfir landamærin í dag, en 15 sýrlenskir hershöfðingjar hafa flúið yfir til Tyrklands.
Um 35 þúsund Sýrlendingar hafa flúið yfir til Tyrklands síðan uppreisnin hófst í mars 2011.