Karlmaður í Vestur-Virginíu-ríki Bandaríkjanna hefur verið handtekinn fyrir að hafa hlekkjað eiginkonu sína við hjónarúmið og fyrir að hafa misþyrmt henni í hartnær 10 ár.
Lögreglan í Jackson-sýslu ákærði Peter Lizon, sem er 37 ára, eftir að kona hans, Stephanie, leitaði á kvennaathvarf með ör á úlnliðum og ökklum. Mun Lizon m.a. hafa fótbrotið konu sína með verkfærum kallað hana þræl sinn, og neytt hana til þess að krjúpa í hvert sinn sem hann kom inn í sama herbergi og hún. Þá var Stephanie með brunasár út um allan líkamann.
Samkvæmt vitnum á Lizon einnig að hafa kýlt konu sína í magann meðan hún var þunguð, og þannig valdið fósturláti. Þá þurfti hún að fæða annað barn á meðan hún var hlekkjuð við hjónarúm þeirra. Tony Boggs, lögreglufulltrúi í Jackson-sýslu, sagði að málið væri tífalt verra en venjuleg dæmi um heimilisofbeldi, og að það væri ótrúlegt hvað sumt fólk gæti gert við aðrar manneskjur.