Vekur umræðu um byssueign

Michael R. Bloomberg, borgarstjóri New York borgar.
Michael R. Bloomberg, borgarstjóri New York borgar. AFP

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, er nú á leið til Aurora í Coloradoríki, þar sem 12 létu lífið og 58 særðust þegar byssumaður skaut á gesti kvikmyndahúss á fimmtudaginn. Atvikið hefur vakið umræðu um meiri hömlur á byssueign í landinu.

Michael Bloomberg, borgarstjóri New York-borgar, er einn fárra stjórnmálamanna sem vilja herða reglugerð um skotvopnaeign. Hann krefst þess að bæði Obama og Mitt Romney, sem verður frambjóðandi Repúblikanaflokksins í forsetakosningunum, vinni að því að reglugerðin verði hert. 

„Þetta er mikið vandamál í landinu. Þessir tveir menn vilja stjórna landinu. Hvar eru þeir núna?“ spurði Bloomberg í sjónvarpsþættinum Face the Nation á sjónvarpsstöðinni CBS í morgun.

Frá Aurora í Coloradoríki. Þar syrgja íbúarnir þá sem létust …
Frá Aurora í Coloradoríki. Þar syrgja íbúarnir þá sem létust í skotárásinni á fimmtudagskvöldið. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert