Uppreisnarmenn réðust á lögreglumenn

Sýrlenski stjórnarherinn hóf harða sókn gegn uppreisnarmönnum í borginni Aleppo í dag. Uppreisnarmenn hafa undanfarna daga safnað liði í borginni til að takast á við stjórnarherinn.

Á miðvikudag sá fréttaritari AFP-fréttastofunnar uppreisnarmennina, sem tilheyra Frelsisher Sýrlands, ráðast til atlögu við lögreglumenn við lögreglustöðina í borginni.

Hann segir að að minnsta kosti tveir lögreglumenn hafi fallið og nokkrir menn særst. Byggingin skemmdist einnig mikið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert