Harður jarðskjálfti skók írönsku borgina Tabriz nú í hádeginu. Ekki hefur verið tilkynnt um tjón en skjálftinn mældist 6,2 stig, samkvæmt upplýsingum frá jarðskjálftamiðstöð háskólans í Teheran.
Upptök skjálftans, sem reið yfir klukkan 12:23 að íslenskum tíma, voru í um 60 km fjarlægð frá Tabriz.
Bandaríska jarðskjálftamiðstöðin, sem fylgist með jarðskjálftum um allan heim, staðfestir að upptök skjálftans séu í nágrenni borgarinnar Tabriz en íbúar hennar eru um ein og hálf milljón talsins.