Algjör ringulreið ríkir í norðvesturhluta Írans en tveir öflugir jarðskjálftar riðu þar yfir í hádeginu í dag. Ekki er vitað hversu margir slösuðust en ekkert símasamband er við íbúa á skjálftasvæðinu.
Jarðskjálftarnir riðu yfir í nágrenni borgarinnar Tabriz þar sem ein og hálf milljón býr. Samkvæmt jarðskjálftamiðstöð háskólans í Teheran var sá fyrri 6,2 stig og sá síðari 6 stig. Aftur á móti mældust þeir 6,4 og 6,3 stig á mælum jarðskjálftamiðstöðvar Bandaríkjanna.
Yfirmaður almannavarna Írans, Mahmoud Mozaffar, segir í samtali við Mehr-fréttastofuna að ekkert símasamband sé við íbúa og eina leiðin til að nálgast þá sé í gegnum talstöðvar. Því liggi ekki fyrir hvort einhverjir hafi látist í skjálftunum né heldur hversu margir hafi slasast. Einungis sé vitað að verið sé að flytja slasaða á sjúkrahús borgarinnar. Þyrlur og björgunarsveitarmenn eru á leið á skjálftasvæðið.
Talsmaður Rauða krossins í Íran, Pouya Hajian, segir að vitað sé um töluverðar skemmdir í bæjum í nágrenni Tabriz, svo sem í bæjunum Ahar, Varzaqan, Mehraban og Heris, auk sex þorpa.
Slökkviliðsstjórinn í Tabriz segir allt rafmagn farið af borginni en mjög misvísandi fréttir hafa borist af skjálftasvæðinu. Einhverjir ráðamenn tala um að hús hafi eyðilagst á meðan aðrir segja engar skemmdir vera á byggingum.
Fjölmargir jarðskjálftar hafa riðið yfir Íran í gegnum tíðina en sá mannskæðasti reið yfir borgina Bam í desember 2003. Alls létust 31 þúsund íbúar borgarinnar í skjálftanum sem mældist 6,6 stig.