Fimmtán ára bresk stúlka stakk af með kennara sínum sem er tvisvar sinnum eldri en hún.
Megan Stammers er frá Eastbourne í Austur-Sussex og hvarf hún með stærðfræðikennaranum sínum, Jeremy Forrest, á föstudag.
Áhyggjur vöknuðu um miðjan dag er Stammers hafði ekki mætt í skólann en Forrest kennir við sama skóla, að því er fram kemur í frétt Telegraph.
Lögreglan rannsakar málið en ekkert hefur spurst til parsins eftir að það lét sig hverfa á föstudag.
Lögregla segist ekki telja stúlkuna í hættu. Faðir hennar hefur komið fram í fjölmiðlum og beðið dóttur sína að hafa samband. „Við erum áhyggjufull og söknum hennar mikið. Gerðu það, Megan, hafðu samband.“
Vinir og ættingjar hafa auglýst eftir Megan, m.a. á Facebook og Twitter.