Sýndu myndir af sjálfsvígi

Bandaríska sjónvarpsstöðin Fox News hefur beðist afsökunar á því að hafa sýnt myndir af því þegar maður, sem var að flýja undan lögreglu, tók upp byssu og skaut sig.

Sjónvarpsstöðin sýndi myndir sem teknar voru úr þyrlu af ökumanni sem flúði á miklum hraða undan lögreglu í Phoenix í Arizona. Hann er talinn hafa stolið bílnum. Maðurinn ók langa leið eftir inn í eyðimörkinni. Hann stöðvaði síðan bílinn, dró upp byssu og skaut sig. Allt var þetta sýnt í beinni útsendingu.

„Við klúðruðum þessu algerlega,“ sagði Shepard Smith, fréttamaður á Fox News í dag og baðst um leið afsökunar á mistökunum. „Við eru öll afar leið yfir þessu. Þetta átti ekkert erindi í sjónvarp.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert