Dómstóll í Moskvu frestaði í morgun fyrirtöku áfrýjunar pönksveitarinnar Pussy Riot á dómi sem þær hlutu fyrir á árinu. Þremenningarnir í Pussy Riot voru dæmdir í ágúst í tveggja ára fangelsi fyrir að raska almannafriði með því að flytja pönkbæn í kirkju í Moskvu í febrúar.
Konurnar áfrýjuðu niðurstöðunni og hefur dómstóll í Moskvu nú ákveðið að fresta fyrirtöku málsins til 10. október.
Ein kvennanna, Yekaterina Samutsevich, hefur sagt lögfræðingi sínum upp og leitar að öðrum. Féllst dómarinn af þessum sökum á að fresta meðferð málsins.