Romney: Eftir tvo daga hefjumst við handa

Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, var sigurviss í ræðu sem hann flutti í gær. „Eftir tvo daga hefjumst við handa,“ sagði Romney en forsetakosningarnar fara fram á morgun, þriðjudag.

Romney hefur líkt og Barack Obama ferðast víða um Bandaríkin síðustu daga, aðallega um lykilríkin sem sögð eru skipta sköpum um hver vinnur kosningarnar.

Kannanir sýna að frambjóðendurnir njóta svipaðs fylgis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert