Flestir vilja frekar fríverslunarsamning

Norden.org

Ef kosið væri í dag um aðild að EES-samningnum myndi meirihluti Norðmanna styðja aðildina samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar þar í landi. Fleiri Norðmenn vilja þó að samband Noregs og Evrópusambandsins sé byggt á tvíhliða fríverslunarsamningi en EES-samningnum samkvæmt könnuninni.

Rúmlega helmingur, eða 53%, segir að væri kosið um aðildina að EES-samningnum núna myndi hann styðja aðildina samkvæmt fréttavef norska dagblaðsins Dagsavisen. Hins vegar segjast 45% frekar vilja fríverslunarsamning en EES-samninginn á móti 29% sem kjósa fremur aðildina að EES.

Þeim fækkar hins vegar sem eru óákveðnir varðandi síðari spurninguna frá síðustu skoðanakönnun og að sama skapi fjölgar bæði þeim sem vilja fríverslunarsamning, um 2%, og þeim sem vilja áfram aðild að EES-samningnum eða um 8%.

Frétt Dagsavisen

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert