Táraðist við að ávarpa unga stuðningsmenn

Eitt af því sem Barack Obama, Bandaríkjaforseti, tók sér fyrir hendur eftir að ljóst var að hann hefði sigrað í forsetakosningunum í Bandaríkjunum síðastliðinn þriðjudag var að hitta og ávarpa fjölda ungs fólks sem starfaði fyrir framboð hans.

„Það sem þið hafi gert gerir það að verkum að það sem ég geri er mikilvægt. Ég er virkilega stoltur af því. Ég er virkilega stoltur af ykkur öllum,“ sagði Obama í ávarpi sínu um leið og honum vöknaði um augun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert