Rændi vopnum úr áströlsku herskipi

Ástralskt strandgæsluskip af gerðinni Armidale.
Ástralskt strandgæsluskip af gerðinni Armidale. Wikipedia/Saberwyn

Brotist var inn í strandgæsluskip í eigu ástralska sjóhersins í morgun og þaðan stolið töluverðu af vopnum. Fram kemur í frétt AFP að þjófunum hafi tekist að yfirbuga vörð um borð í skipinu og í framhaldinu látið greipar sópa.

„Hinn óboðni gestur yfirbugaði vörð, opnaði vopnabúr skipsins og fjarlægði talsvert af vopnum,“ segir í yfirlýsingu frá varnarmálaráðuneyti Ástralíu en ekki hefur verið upplýst hvaða vopn voru tekin en skipið, sem er af Armidale-gerð, er staðsett í borginni Darwin í norðurhluta landsins.

Fram kemur í fréttinni að venjulega sé að finna vélbyssur í vopnabúri slíkra eftirlitsskipa, árásarriffla, haglabyssur og skammbyssur auk skotfæra. Ríkisútvarp Ástralíu segir að um einn einstakling hafi verið að ræða sem vopnaður var skotvopni.

Umfangsmikil leit stendur nú yfir að vopnunum og hefur ástralski sjóherinn fyrirskipað úttekt á öryggismálum allra herskipa og flotastöðva á vegum hans.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert