Öll börnin sem létust voru 6-7 ára

Tólf stelpur og átta drengir sem létust í skotárásinni í Sandy Hook-skólanum í Connecticut á föstudag voru öll á aldrinum 6-7 ára. Sex fullorðnir létust, allt konur. Búið er að birta nöfn þeirra sem létust.

Allir sem létust voru skotnir fleiri en einu skoti. Aðeins ein manneskja, sem varð fyrir skoti, lifði árásina af og bendir ekkert til annars en að hún muni ná fullri heilsu.

Á blaðamannafundi seint í gærkvöldi talaði Robbie Parker, sem missti sex ára dóttur sína, Emily Parker, í árásinni. Hann sagðist vilja þakka öllum fyrir stuðninginn og umhyggjuna á þessum erfiðu tímum.

Við finnum huggun í þeirri staðreynd að Emily var ótrúlega manneskja og að hún var fær um að snerta líf margra á þeim stuttum tíma sem hún var meðal okkar,“ sagði Robbie Parker.

„Hlátur hennar var smitandi. Hún elskaði að prófa eitthvað nýtt og hún var framúrskarandi listamaður.“

Parker sagði að fjölskylda sín væri að fara í gegnum erfiða tíma. Hann lýsti jafnframt yfir stuðningi við fjölskyldu morðingjans. „Það er hræðilegur harmleikur og ég vil láta ykkur vita að við finnum til með henni. Hún líður líka fyrir þetta og ég get ekki ímyndað mér hversu sársaukafullt það er fyrir hana að upplifa þetta,“ sagði Parker.

Nöfn barnanna sem létust:

* Charlotte Bacon (6)
* Daniel Barden (7)
* Olivia Engel (6)
* Josephine Gay (7)
* Ana M Marquez-Greene (6)
* Dylan Hockley (6)
* Madeleine F Hsu (6)
* Catherine V Hubbard (6)
* Chase Kowalski (7)
* Jesse Lewis, (6)
* James Mattioli, (6)
* Grace McDonnell (7)
* Emilie Parker, (6)
* Jack Pinto, (6)
* Noah Pozner (6)
* Caroline Previdi (6)
* Jessica Rekos(6)
* Avielle Richman (6)
* Benjamin Wheeler (6)
* Allison N Wyatt (6)

Nöfn þeirra fullorðnu sem létust:

* Rachel Davino, (29)
* Dawn Hochsprung (47)
* Anne Marie Murphy (52)
* Lauren Rousseau (30)
* Mary Sherlach (56)
* Victoria Soto (27)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert