Nú eru liðin 11 ár frá því fyrstu fangarnir voru fluttir til Gvantanamó-fangabúðanna á Kúbu. Barack Obama Bandaríkjaforseti verður að uppfylla loforð sem hann gaf árið 2009 um að loka fangabúðunum í Gvantanamó og staðfesta um leið að Bandaríkin muni rétta yfir föngunum eða sleppa þeim ella.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsdeild Amnesty International.
Enn eru 166 fangar í haldi í fangabúðunum. Frá 2002 hafa 779 manns verið fluttir til Gvantanamó og langflestir mátt sitja þar í fangelsi árum saman án ákæru eða réttarhalda.
Herdómstóll hefur fellt dóma yfir sjö manns, þar af hafa fimm verið dæmdir á grundvelli samkomulags, þar sem viðkomandi hafa lýst sig seka í skiptum fyrir möguleikann á að vera leystir úr haldi, segir í tilkynningu Amnesty.
Sex fangar eiga yfir höfði sér aftöku eftir réttarhöld fyrir herdómstóli sem uppfylla ekki alþjóðleg viðmið um réttlát réttarhöld. Allir sex fangarnir sættu þvinguðu mannshvarfi áður en þeir voru fluttir til Gvantanamó og hafa sætt misþyrmingum. Tveir þeirra hafa sætt vatnspyndingum, þar sem viðkomandi er í raun drekkt með vissu millibili, að því er fram kemur í frétt Amnesty.
„Bandaríkjastjórn verður að láta af háttalagi sínu og viðurkenna alþjóðleg mannréttindalög og framfylgja þeim. Leggja verður herdómstóla niður og rétta yfir einstaklingum í óvilhöllum réttarhöldum fyrir borgaralegum dómstólum. Leysa verður þá tafarlaust úr haldi sem bandarísk stjórnvöld hafa ekki í hyggju að ákæra og tryggja verður ábyrgðarskyldu vegna mannréttindabrota stjórnvalda,“ segir í tilkynningu frá Íslandsdeild Amnesty International.