Hollande: Frakkar hafa stöðvað íslamistana

Francois Hollande Frakklandsforseti sagði á blaðamannafundi að franski herinn hefði náð að aðstoða stjórnarherinn í Malí að stöðva útrás íslamista í landinu.

Herskáir íslamistar hertóku svæði í norðurhluta landsins fyrir um ári og komu þar á svokölluðum sjaría-lögum. Þeir hafa svo verið að færa sig upp á skaftið og reynt að ná undir sig svæðum í sunnanverðu landinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert