Bundu karlana og nauðguðu konunum

Hermenn standa vörð skammt frá húsinu þar sem hópnauðgunin átti …
Hermenn standa vörð skammt frá húsinu þar sem hópnauðgunin átti sér stað í fyrrinótt. AFP

Hópur grímuklæddra og vopnaðra manna nauðgaði sex spænskum ferðamönnum á mexíkóska ferðamannastaðnum Acapulco. Árásin er nýjasti kaflinn í ofbeldishrinu sem hefur gengið yfir svæðið sem áður var íburðamikill og vinsæll ferðamannastaður við Kyrrahafið.

Árásin var hrottaleg og stóð yfir í margar klukkustundir. Hún átti sér stað aðfaranótt mánudags í húsi sem sex spænskir karlar, sex spænskar konur og ein mexíkósk kona höfðu leigt á friðsælli strönd rétt fyrir utan Acapulco.

Árásarmennirnir komust inn í húsið er tveir Spánverjarnir voru úti í garði. Borgarstjórinn í Acapulco segir að þeir hafi svo verið þvingaðir til að hleypa árásarmönnunum inn í húsið.

Árásarmennirnir voru fimm og miðuðu byssum á ferðamennina sem í húsinu dvöldu. Þeir bundu karlana með símasnúrum og beltum af baðsloppum. Síðan nauðguðu þeir spænsku konunum. Mexíkósku konunni var ekki nauðgað.

Saksóknarinn sem fer með málið segir að mexíkóska konan hafi beðist vægðar og að árásarmennirnir hafi hlíft henni þar sem hún væri Mexíkói.

„Sem betur fer erum við með traust sönnunargögn sem geta leitt okkur að hinum seku,“ sagði saksóknarinn.

Árásin hófst um tveimur klukkustundum eftir miðnætti, aðfaranótt mánudags. Fórnarlömbin gátu ekki tilkynnt um glæpinn fyrr en fimm klukkustundum síðar.

Acapulco var eitt sinn gríðarlega vinsæll ferðamannastaður og á sjötta og sjöunda áratugnum var hann m.a. mjög vinsæll viðkomustaður kvikmyndastjarna.

Undanfarin ár hafa þó fíkniefnasalar og ofbeldismenn skemmt ímynd staðarins. Hingað til hafa ferðamennirnir sjálfir þó að mestu sloppið undan árásum glæpamannanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert