Recep Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrklands, greindi frá því í dag að Tyrkland muni brátt gera upp sína lánamál gagnvart Alþjóðagjaldeyrissjóðnum(AGS). Hann segir að í maí verði Tyrkir búnir að standa skil á lokagreiðslu til AGS.
„Við höfum verið að borga og borga [...] Nú stendur skuldin í 860 milljónum dölum,“ sagði ráðherrann í sjónvarpsávarpi.
„Þegar við greiðum síðasta hlutann í maí, þá verður skuldin núllstillt og við verðum með hreint borð,“ sagði Erdogan ennfremur.
Flokkur Erdogans, Réttlætis- og þróunarflokkurinn (AKP), tók við 23,5 milljarða skuld hjá AGS þegar flokkurinn komst til valda árið 2002.