Fáni Vatíkansins var dreginn niður við Gandolfo kastala fyrir utan Róm klukkan 19:00 að íslenskum tíma, en þá tók afsögn Benedikts páfa XVI, trúarleiðtoga 1,2 milljarðs jarðarbúa, gildi.
Svissnesku verðirnir, lífverðir páfa, fylgdu honum að kastalanum í kvöld, lokuðu þungum viðarhurðum hennar og hurfu síðan á brott. Þeir munu ekki koma aftur til starfa fyrr en nýr páfi hefur verið kosinn.
Sérfræðingar í málefnum Vatíkansins hafa leitt að því líkum að afsögn Benedikts XVI gæti gefið tóninn fyrir komandi páfa; að þeir segi af sér er aldurinn fari að færast yfir þá.
Aðrir telja að afsögnin gæti orðið til þess að næsti páfi verði talsvert yngri en fyrirrennari hans og gæti þá verið lengur í embætti en þau átta ár sem Benedikt hefur setið á páfastóli.